5.6.2008 | 12:20
Ég vona að þetta berist ekki hingað
Vinum mínum var nóg um of ó þegar að þeir vissu að við fórum að veiða hvali aftur. Ef þeir frétta af þessu þá halda þeir að hið friðaða og fallega Ísland sé bara alls ekki svo friðað og fallegt eftir allt. Þvílíkur smáborgarháttur að geta ekki komið dýrinu aftur á réttan kjöl, heldu bara skotið á staðnum.
Ég var sjálf mjög reið þegar að ég sá þessar myndir og ég skil bara ekki af hverju þurfti að birta svona blóðugar myndir af þessum atburði.
Ég er ekki að segja að svangt dýr gæti hafa valdið skaða, en eins og dýralæknirinn benti réttilega á þá hefði alveg mátt koma í veg fyrir þetta og land eins og Ísland, þar sem þetta getur alltaf komið fyrir og hefur komið fyrir,ætti að vera sá undir þetta búið. Lögreglan hefði t.d. átt að byrja á því að rýma svæðið og biðja fólk að vera ekki að þvælast þarna að óþörfu. En þetta er nú bara mín skoðun. Ég var t.d. að horfa á einhverja stöðina hér um daginn og þá var þáttur um hvernig var verið að bjarga háhyrningum sem fóru óvart of nálægt landi og komust ekki út aftur, tók þau vikur að ná þeim út. Eins hefur maður séð svona gerast hér, það er með hákarla og annað. Það er allt gert til að bjarga dýrunum og koma þeim aftur út í sitt rétta umhverfi. Hvað var nú ekki gert fyrir kallin Keikó. Ég verð nú að segja líka að þegar að ég sá þetta þá var mér hugsað til ísbjarnarungans sem er í dýrgarðinum að ég held í Berlín, þessi sem vakti svo mikla athygli fyrir ári eða tveim og öllum þótti svo sætur og fínn,,, hann er örugglega á við þennan í dag, eða hvað....
Enda þessa færslu mína á myndbandi sem er auglýsing og mikið sýnd allvegar hér á austurströndinni þessa dagana og er einmitt af Polar Bear, svo að ég held að Kaninn verði nú ekki ánægður ef hann fær veður af þessu
|
Hvítabjarnarmál vekur athygli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
BostonInga
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 5245
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


bertha
steina
overmaster
jonaa
ringarinn
binnan
malacai
jonerr







Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.