Verslunarfólk í Boston getur tekið gleði sína á ný

Þar sem íslendingar virðast vera komnir aftur á stjá. Mig minnir að það hafi verið í kringum hrunið þá var ég einmitt spurð hvað hafði eiginlega orðið um alla verslunarglöðu íslendingana en þeir þekktust vel í Boston og verslunarmenn þar voru ánægðir með hvað íslendingarnir voru duglegir að versla:)
mbl.is Miklar annir í rauða hliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er

Steingrímur nú orðin fjármálaráðherra Hollands líka...
mbl.is Volkskrant: Milli tveggja elda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólk hættir ekki að vera veikt

Það er nú alveg á hreinu að fólk hættir ekki að vera veikt þrátt fyrir kreppu. Mér finnst þetta nú alveg fyrir neaðn allar hellur að margar deildir hafa ekki efni á að hafa fullmannað hjá sér lengur og að það eigi ekki að ráða fyrir það fólk sem hættir hvort sem það er vegna aldurs eða veikinda.
Ég verð svo reið þegar að ég heyri svona og les um þetta. Ef eitthvað er þá er enn meiri þörf á að hafa vel mannað og allar deildar starfhæfar þar sem ég er nokkuð viss um að nú sem aldrei fyrr er þörf fyrir að hafa vel mannað. Ég er nokkuð viss um að í öllu þessu stressi sem hrjáir landan núna verður meira um að fólk veikist og þá á það við hvort sem það er líkamlegt eða andlegt.

Um að gera að taka jákvæðnina á þetta allt saman....eða reyna það allavegar


Ég var ansi heppin að fá vinnu dagin eftir að ég kom aftur á klakan. Fékk fyrst sumar ráðningu en allt stefndi í áframhaldandi vinnu, og jú ég er enn að vinna hjá LSH en það er bara engin fastráðin þar þessa dagana og fékk því bara tímabundna ráðningu til áramóta. Við erum nokkur á minni deild sem er svona ástatt fyrir og auðvitað er þetta mjög óþægileg staða. Deildastjórin ræddi samt við okkur í síðustu viku og tjáði okkur að þar sem bæði væru veikindi starfsmanna á deildinni og eins að deildin væri með nær lámarksmönnum væri lítill hætta á að við fengjum ekki að vera áfram, hún sagði reyndar þetta er eins og málin standa í dag, maður veit nátturulega ekkert hvað gerist á morgun. Svo núna stend ég sjálfa mig í því að spá í hvort að maður á að hreinlega treysta því hvort að maður hafi vinnu eftir áramot eða ekki, væri ekki best fyrir mig að setja allt út þarna og reyna að finna eitthvað annað sem væri kannski eitthvað stöðugra. Mér likar mjög vel að vinna þar sem ég er og mjög góður hópur af fólki að vinna með, svo að sjálfsögðu myndi ég vilja vera þar áfram. En núna á þessum allra verstu verður maður að hugsa um sjálfan sig þar sem það gerir það engin fyrir mann. Ég viðurkenni alveg að ég er alveg nett pirruð að hafa þurft að flytja hingað aftur og sérstaklega þar sem efnahagurinn er í algerri rúst. Manni finnst svo sárt að vera að borga fyrir eitthvað sem t.d. bankar og aðrir útrásarvíkingar gerðu og í raun komu landinu okkar um koll. Við hér þessir venjulegu íbúar þessa lands sem ekki tóki þátt í öllu þessu kapphlaupi erum eflaust farin að hljóma eins og of spiluð plata en svona er þetta og maður bara hreinlega skilur þetta ekki. Ég vona svo innilega annara vegna að þetta dómsmál sem hjónin í Kópavogi eru að reka farið alla leið og fleiri fari þeirra leið enda er þetta allt saman bara gjörsamlega siðlaust. Sem betur fer kannski er ég bara sjálf að byrja á byrjun með að flytja aftur hingað, á ekkert hvorki penning né skuldir og ætla bara að halda því þannig. Bara eins gott að maður haldi annaðhvort vinnunni eða fái eitthvað annað að gera. Maður lifir víst ekki á loftinu einu, það er nokkuð ljóst.

Mál Önnu Maríu og því sem hún lenti í

Ég hef nú átt hund eða hunda í frekar mörg ár bæði hér á landi og erlendis en ég held bara að ég geti sagt að ég hef aldrei séð eða vitað annað eins. Maður hefur jú heyrt í fjölmiðlum um ílla meðferð á dýrum og hundum en að eigendur hunda hreinlega ráðist á annan hundaeiganda eins og gerðist í þessu tilviki, jam held ég að gerist næstum bara í verstu getto hverfum í útlöndum, en ekki á okkar friðsæla Íslandi. Ég ætla ekki að draga neitt í efa sem hún Anna María segir en samt eru yfirleitt alltaf til tvær hliðar á öllum málum. Ég er nokkuð viss um að ég hefi orðið vitni af einhverju eins og þessu þá hefði ég farið og athugað hvað væri í gangi. Fyrir mér er hundur partur af fjölskyldunni og eins fyrir mér eru mínir hundar börnin mín og að einhver komi svona fram við hunda eða dýr og hvað þá börn er nátturulega fyrir neðan allar hellur. Auðvitað þarf að skamma þessar elskur from time to time og all flestir hundar sem eru eitthvað aldir upp þekkja orðin nei og tónin í rödd manns. WOW ég gæti skrifað endalaust um þetta. Er búin að liggja andvaka hér og hugsa um þetta og varð bara að reyna að koma minni skoðun aðeins á framfæri. Sýnist samt sem undartekningalaust allir sem kommentuðu á bloggið hennar vera mér sammála. En samt eitt sorglegt ef þessi hundur hefði verið barn, hefði allt orðið vitlaust og barnið eflaust tekið af þeim á staðnum, eða ég ýminda mér það. Eitthvað hljóta þessir penningar sem maður verður að borga fyrir hund á Íslandi í dag fara í, er ekki alveg að skilja að maður sé að borga yfir 15.000.- per hund og fái að mér finnst lítið sem ekkert fyrir. Í Boston borgaði ég $17.- fyrir hund sem hafði ekki verið vanaður á ári og hann var líka tryggður þar. Ég óska Önnu Maríu alls hins besta í því sem er framundan hjá henni.

Fyrsta færsla í all langan tíma

Ætli það sé ekki komin timi til að blogga aðeins. Kannski að ég byrji á þvi að segja að maður sé fluttur á klakan aftur eftir nokkra ára dvöl í Ameríku. Var reyndar ekki alveg á því að flytja heim en það var ekki um annað að ræða og kannski ekki alveg besti tímin að koma til landsins en maður hefur verið alveg feikna heppin. Eftir einn dag var ég komin með vinnu og eftir tvo daga komin með húsnæði fyrir mig og voffana mína.
En rosalega var þetta allt mikið mál og mikið af paprisveseni að flytja aftur á klakan, meira mál að flytja hingað en að fara út eða það er allavegar svona minningin. Eins hefur kostnaðurinn verið alveg ótrúlegur. Nú er bara að taka á því að vera komin hingað í frekar leiðinlegan tíma og allt sem er að gerast hér, mest fúlt að vera að fara að vinna fyrir skuldum annara og að skattar manns fari í að borga upp eftir jam þessa útrásarvíkinga.
Nóg um þetta í bili en ég ætla nú að fara að koma mér í að láta ljós mitt skína aðeins enda hefur maður alveg skoðanir á ýmsu og myndi vilja fá koment á þær og kommenta hjá öðrum..

Að vakna við íslenska nátturu:)

Ekki oft sem ég set á morgunþætti hér og ekki vissi ég að Today show ætlaði að vera á Íslandi þessa dagana.  Auðvitað kom upp þjóðarstolltið í manni.  Ætla að halda áfram að horfa:)
mbl.is Ísland í beinni á NBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins of seint í rassin gripið!!

Mér finnst þetta nú aðeins of seint hjá henni að koma fram með þetta núna.  Ég er alveg viss um að hún hefur notið hverra einustu mínútu sem hún varði i að kaupa þessi föt og fara í make up og því sem þessu fylgdi, hver vill ekki eyða 17 miljónum í föt, ég bara spyr... kannski ekki alveg, 1.7 miljón hefði eflaust verið nóg.  Ég held að hún ætti nú bara að halda þessum fötum, hver veit nema að þau komi að góðum notum síðar, ekki það að ég held að hún eigi eftir að verða varaforseti hér.   Eitt finnst mér samt að fólk verði að huga að þó að heimskulegt sé, þá selur það að koma vel fram og vera vel til hafður svo auðvitað kostar það líka.  Mér finnst samt frekar ósennilegt að hún gangi í fötum sem hún kaupir í einhverri póstverslun í Alaska.  Það hefði verið ódýrara fyrir Republikana að hafa mann í þessu sæti,, enda þurfa menn bara að eiga nokkur góð jakkaföt og kannski 7 skyrtur og bindi, eitt fyrir hvern dag, alls ekki eins dýrir  í rekstir;)


mbl.is Sarah Palin kastar fínu fötunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

BostonInga

Höfundur

BostonInga
BostonInga
Er flutt aftur á klakan eftir nokkra ára dvöl erlendis.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 4 july 2008 067
  • 4 july 2008 077
  • 4 july 2008 080
  • 4 july 2008 113
  • 4 july 2008 115

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 5238

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband